Wednesday, March 10, 2010
 View Article

Current Articles | Categories | Search

11 milljón kr. styrkur til Fjölsmiðjunnar

Í dag fékk Fjölsmiðjan afhentan veglegan styrk vegna sölu bókar Nóatúns, Veisla með fjölskyldu og vinum, úr hendi Eysteins Helgasonar framkvæmdastjóra Kaupáss. Framleiðsla bókarinnar var styrkt að fullu af styrktarsjóði Norvikur og Nóatúni.

Bókin var seld í öllum Nóatúnsverslunum fyrir jólin og fór allt söluandvirðið óskert til Fjölsmiðjunnar. Bókin seldist gríðarlega vel, varð í 5. sæti yfir mest seldu bækur á síðasta ári s.k.v. metsölulista Morgunblaðsins og í fyrsta sæti í sínum flokki.

Fjölsmiðjan fékk afhendar rúmar 11 milljónir kr., eyrnarmerktar nýrri tónlistardeild, sem hefur verið draumur í mörg ár að stofna. Eins á að styrkja hússtjórnardeildina  til muna og þá sérstaklega eldhúsið.

Fjölsmiðjan er vinnusetur fyrir ungt fólk
sem stendur á krossgötum í lífinu.
Hér gefst fóki tækifæri til að þjálfa sig fyrir almennan vinnumarkað eða áframhaldandi nám.

Út trésmíðadeild Fjölsmiðjunnar, einni af fjölmörgum deildum.

Afhending styrksins, fv. Bjarni Jóhannsson, rekstrarstjóri Nóatúns. Eysteinn Helgason, framkvæmdastjóri Kaupáss, Steinunn Jónsdóttir, formaður styrktarsjóðs Norvikur og Þorbjörn Jensson forstöðumaður Fjölsmiðjunnar

Þorbjörn Jensson forstöðumaður Fjölsmiðjunar að þakka fyrir styrkinn.