
Fyrsti lágvöruverðskjarni á Íslandi,Lindir í Kópavogi, var opnaður 29. maí síðastliðinn í sól og fallegu veðri. Í þessum kjarna eru stórverslanir Krónunnar, Intersport og ELKO.
Það er mikill fengur fyrir höfuðborgarbúa að fá þessar verslanir og hafa þær fengið frábærar viðtökur. Krónuverslunin er stærsta sinnar tegundar, ELKO verslunin var flutt úr Smáratorgi í stærra húsnæði, en Intersport er ný á svæðinu, þó er lítil Intersport verslun í Smáralind.