Jarðskjálftar hafa verið á Suðurlandi frá því í lok maí og hefur stærsti skjálftinn verið rétt innan við 7 á Richter.
Verslanir Nóatúns og BYKO á Selfossi hafa ekki farið varhluta af þessum skjálftum.
Mikið af varningi hristist úr rekkum og nokkrar skemmdir urðu þegar málningardósir og ýmislegt brothætt fell í gólfið. Einnig urðu skemmdir á rekkum og þaki verslunarhússins sem Nóatún er í .
Starfsmenn á báðum stöðum stóðu sig frábærlega við að koma öllu í lag á ný og eru enn að.



