Jarl Timber, Broakulla í Svíþjóð minnkar framleiðslu úr 160.000m3 í 110.000m3 árið 2010
Mánudagur, 09. nóvember 2009

Eftir að mikið af sögunarbolum féll til eftir stormana Gudrun og Per árin 2005 og 2006, er nú að verða alvarlegur skortur á sögunarbolum í suður Svíþjóð og ekki séð að bót verði þar á næstu mánuðina.

Því hefur stjórn Jarl Timber nú tekið þá ákvörðun að minnka framleiðslu fyrirtækisins úr um 160.000m3 af söguðu timbri eins og stefnir í á yfirstandandi ári, í um 110.000m3 á næsta ári.

Því miður þarf að taka þessa ákvörðun en henni fylgja uppsagnir um 45 starfsmanna félagsins, sem koma til framkvæmda á næstu mánuðum.

Jarl Timber er eftir sem áður í góðum rekstri og fyrirtækið byggir á traustum fjárhagslegum grunni.

Jón Helgi Guðmundsson
Forstjóri Norvíkur