Styrktar- og menningarsjóður Norvíkur - styrkir veittir á árinu
Föstudagur, 26. september 2008
Styrktar- og menningarsjóður Norvíkur hf. var stofnaður í ársbyrjun 2007. 

Tilgangur sjóðsins er að styrkja verkefni eða félög sem snúa að menningu, íþróttum, listum, menntun, forvarnarstarfi, líknarmálum eða öðru því sem stjórn sjóðsins ákveður hverju sinni.  Sérstök áhersla er lögð á að styrka verkefni sem tengjast börnum og unglingum og menntun þeirra. Með þessu framtaki vill stjórn sjóðsins efla tengsl Norvíkur við samfélagið og sýna samfélagslega ábyrgð í verki.

Stærsta verkefni sjóðsins á þessu ári er útgáfa matreiðslubókar sem gefin verður út í samvinnu við Nóatún til styrktar Fjölsmiðjunni, sem er vinnustaðar fyrir ungt fólk. Mun matreiðslubókin koma út innan skamms og verður hún til sölu í öllum verslunum Nóatúns. Styrkir sjóðurinn útgáfu bókarinnar og mun söluandvirði hennar renna óskert til Fjölsmiðjunnar.

Þriggja manna stjórn mótar stefnu sjóðsins og tekur ákvörðun um úthlutanir hverju sinni.  Stjórn sjóðsins skipa Steinunn Jónsdóttir, stjórnarmaður í Norvík, Gísli Jón Magnússon, fjármálastjóri Kaupáss, og Guðríður H. Baldursdóttir, starfsmannastjóri Kaupáss.

Þriðja úthlutun ársins 2008 úr Styrktarsjóði Norvíkur fór fram í byrjun september og hafa þá eftirfarandi verkefni, félög og einstaklingar verið styrkt(ir) á árinu:



Blúshátíð Reykjavíkur 2008       
Breiðfirðingakórinn       
Draugar úti í mýri - Barnabókmenntahátíð í Reykjavík 2008       
Ella Vala Ármannsdóttir - Styrkur til náms og hljóðfærakaupa       
Maximus Músikús - Útgáfa bókar og geisladisks til kynningar á tónlist fyrir börn       
Sönghópur FEB Skagafirði       
Körfuboltaskóli Tindastóls       
Stefán Jón Sigurgeirsson skíðamaður - Styrkur til æfinga og keppni       
Sunddeild Ármanns       
Svæðisskrifstofa fatlaðra - Uppbygging útisvæðis að Gylfaflöt       
Hringsjá, náms- og starfsendurhæfing - Endurnýjun á búnaði, húsgögnum og kennslugögnum       
Landsbyggðarvinir í Reykjavík og nágrenni - Heimabyggðin mín, skólaverkefni á landsbyggðinni       
Hring eftir hring - Kennslubók og hugmyndaefni fyrir starfsfólk leikskóla, tónlist og hreyfing       
Elsa María Kristínardóttir - Styrkur vegna þátttöku í alþjóðlegu skákmóti       
Skíðadeild Tindastóls - Snjóframleiðslukerfi       
Sigrún María Kristinsdóttir - Bók um ættleiðingar á Íslandi       
Foreldra- og styrktarfélag Öskjuhlíðarskóla - Rekstur sumardvalar að Laugalandi       
Þjóðlagahátíð á Siglufirði 2008       
Foreldrafélög Lágafellsskóla og Varmárskóli í Mosfellsbæ - Sundpokar       
ÖSP - Íþróttafélag fatlaðra og þroskaheftra       
Leikhópurinn Lotta - Galdrakarlinn í Oz, barnaleiksýningar á landsbyggðinni       
Vinnustaður fatlaðra, Hvolsvelli       
Dimmuhvarf, heimili fyrir einstaklinga með einhverfu       
Knattspyrnudeild Selfoss.       
Knattspyrnulið Aftureldingar, kvennalið -  Bleika slaufan       
Hestamannafélagið Andvari       
Knattspyrnudeild ÍA       
Björgvin Björgvinsson skíðamaður - Styrkur til æfinga og keppni       
Anna Kristín Jensdóttir       
Alþjóðaver - Ljósmyndasýning, The Arctic Convoys       
Rannsóknarsetur verslunarinnar - Umhverfismál í innkaupavagninn, fræðsluefni          
Hallgrímskirkja í Vindáshlíð  - 50 ára vígsluafmæli, viðgerðir á kirkju       
Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs - Leiklistarhátíð ungs fólks       
Hjálparsveit skáta í Hveragerði - Búnaður í nýtt hús       
Íþróttasamband Fatlaðra - Ólympíuleikarnir í Peking       
Börn, skilnaðir og Þjóðkirkjan - Heimildarmynd og fræðsla       
Óháði söfnuðurinn - Viðgerðir á kirkju       
ADHD samtökin - Ráðstefna 2008