Fréttir
LAESTI opnar nýja sögunarmyllu
Mánudagur, 14. maí 2012
Þann 26. apríl síðastliðinn opnaði LAESTI formlega nýja sögunarmyllu í Sauga sem er staðsett í Pärnu í suð-austur Eistlandi.  LAESTI er dótturfélag Norvik hf. og hluti af Norvik Timber Industries, NTI.  
Fyrir rekur LAESTI aðra sögunarmyllu í Pärnu, Savi, en einungis er um 5 km á milli þeirra.   Í fyrsta áfanga er tekin í notkun flokkunarlína og sögunarlína en þurrkun á timbri frá Sauga mun fara fram í Savi.
Sögunarlínan samanstendur af eldri búnaði sem meðal annars var tekin niður í dótturfyrirtæki Norvikur í Svíþjóð, Jarl Timber, og flutt til Eistlands þar sem hún er mun hentugri fyrir trjáboli af svæðinu í kringum Pärnu.  Sögunarmyllan í Sauga mun veita um 20 manns atvinnu á einni vakt en fyrir vinna um 80 manns hjá LAESTI.  Afkastageta Sauga-myllunar er um 40.000 rúmmetrar af timbri á ári, m.v. eina vakt.  
Á árinu 2011 framleiddi Savi-myllan 40.000 rúmmetra.  Allt timbur frá LAESTI fer í frekari vinnslu eða dreifingu hjá BYKO-Lat í Lettlandi. Hægt er að sjá umfjöllun á vefsíðu eistneska sjónvarpsins um opnun myllunar og viðtal við Olavi Tang framkvæmdastjóra LAESTI.

Viðtal við Olavi Tang
 
PRESS RELEASE
Föstudagur, 08. júlí 2011

On the 1st of July Byko Lat has started its 3rd planing line at its Valmiera site in Latvia. Annual production capacity will increase from 120 000 m3 to 160 000 m3.

-The main reason for the production capacity increase is to be more flexible with the production and decrease lead times to our customers, says Valts Kurpnieks, Managing Director at Byko Lat.

- The capacity increase in Valmiera accommodates also our production increase scheduled for 2012 at Laesti which is our Estonian sawmill in Parnu, says Sampsa Auvinen, CEO of Norvik Timber Industries.

Byko Lat has also at its Valmiera site a window and door factory and a prefabricated house factory.

Garden furniture production is located at Byko Lat’s Cesis factory. All production is sold to Europe and North Africa.

Byko Lat is part of Norvik Timber Industries.

 
Breytingar hjá BYKO
Þriðjudagur, 28. júní 2011

Ákveðið hefur verið að loka verslun BYKO í Kauptúni í Garðabæ þann 30. september næstkomandi og hefur ríflega 20 starfsmönnum verslunarinnar verið sagt upp störfum. Sigurður E. Ragnarsson, forstjóri BYKO, lætur af störfum hjá félaginu og Guðmundur H. Jónsson tekur við hlutverki hans, en hann hefur verið forstjóri Smáragarðs og í stjórn Norvíkur og dótturfélaga. Iðunn Jónsdóttir er stjórnarformaður BYKO.

 

Um ástæður þessara aðgerða þarf vart að fjölyrða. Aðstæður í íslensku efnahagsumhverfi hafa í langan tíma verið slæmar með tilheyrandi samdrætti í verslun með byggingarvörur. Þá hafa samkeppnisaðstæður á þeim markaði gjörbreyst með eignarhaldi og afskriftum banka á skuldum og síðar yfirtöku lífeyrissjóða á einu þeirra fyrirtækja sem starfrækt er á þessu sviði. BYKO er því nauðugur sá kostur að rifa seglin og laga sig þannig að breyttum aðstæðum.

 

Jón Helgi Guðmundsson, stjórnarformaður og forstjóri Norvíkur: “Þetta eru afar sársaukafullar aðgerðir og hefur fjölskyldan sem staðið hefur að baki rekstri BYKO síðan verslunin var sett á laggirnar árið 1962 ákveðið að taka á nýjan leik alfarið við stjórnartaumunum. Þannig öxlum við sjálf þungann af bæði þessum aðgerðum og þeim breytingum sem nauðsynlegar kunna að verða á næstu mánuðum og misserum. Ég vil þakka Sigurði E. Ragnarssyni sérstaklega fyrir hans langa og heilladrjúga starf fyrir BYKO, en hann hverfur nú til annarra starfa á vegum Norvíkursamstæðunnar.“

 

BYKO hefur verið leiðandi afl á íslenskum byggingavörumarkaði í tæplega hálfa öld. Félagið er ákveðið í að standa áfram vörð um vandaða þjónustu á því sviði og leggja sitt af mörkum til að heilbrigð samkeppni fái að dafna til augljósra hagsbóta fyrir neytendur.

 

Reykjavík 28. júní 2011

Fréttatilkynning frá Norvík

 
Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum í morgun vill BYKO koma eftirfarandi á framfæri
Þriðjudagur, 08. mars 2011

BYKO hefur ávallt lagt sig fram um að tryggja að starfsemi fyrirtækisins og viðbrögð þess á markaði séu í samræmi við samkeppnislög. Fyrirtækið hefur unnið með rannsóknaraðilum og afhent þau gögn sem óskað hefur verið eftir. BYKO gerir ekki athugasemdir við að rannsóknaraðilar ræki skyldur sínar með þessum hætti.

Iðunn Jónsdóttir, 
Stjórnarformaður BYKO

 
Anna Bjarnadóttir
Mánudagur, 14. febrúar 2011
anna-bjarnadottirkross-4

Í gær lést móðir mín, Anna Bjarnadóttir frá Öndverðanesi, einn af stofnendum BYKO og Norvíkur, á 91. aldursári eftir skammvinn veikindi.

Hún hefur frá upphafi verið einn af helstu bakhjörlum okkar og fylgdist lengst af með velgengni og framgangi félagsins.

Af þeirri ástæðu er í dag flaggað í hálfa stöng á helstu starfsstöðvum Norvíkur.


Með bestu kveðju,
Jón Helgi Guðmundsson
Forstjóri Norvíkur
 
Jólaaðstoð 2010
Mánudagur, 10. janúar 2011


Ágóði af pokasölu í matvöruverslunum Kaupáss rennur í Styrktar- og menningarsjóð Norvikur.  Stjórn sjóðsins ákvað að frá 15. nóvember 2010 til áramóta yrði allur ágóði af pokasölu í Kjarval, Nóatúni, 11-11 og Krónunni ánafnað í eitt verkefni og varð Jólaaðstoðar 2010 fyrir valinu.  Jólaaðstoð 2010 var samvinnuverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar, Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, Rauða krossinn í Reykjavík og Hjálpræðishersins fyrir þá sem verst eru settir í samfélaginu og þeim veittur styrkur í formi matarpoka eða þá inneignarkorta í matvöruverslunum.
Alls safnaðist rúmlega rúmlega 2,9 milljónir og var Jólaastoðinni afhent gjafabréf í matvöruverslunum Kaupáss fyrir 3 milljónir en það var gert í desember.  Á meðfylgjandi mynd sést Lovísa Þórðardóttir skrifstofustjóri Norvikur afhenda Atla Geir Hafliðasyni fulltrúa Jólaaðstoðarinnar síðasta hluta styrksins.
 
Jólakveðja 2010
Þriðjudagur, 21. desember 2010
 
Úthlutanir Styrktar- og menningarsjóðs Norvikur
Þriðjudagur, 07. september 2010

Í upphafi ársins 2007 stofnaði Norvik sérstakan sjóð til að veita styrki og sýna samfélagslega ábyrgð. Sjóðurinn starfar samkvæmt skipulagsskrá og þar segir um tilgang sjóðsins:

 

„Tilgangur sjóðsins er að styrkja verkefni eða félög er varða góðgerðarmál, forvarnarstarf, menningu og listir, menntun og rannsóknir, íþróttir eða annað það sem stjórn sjóðsins ákveður hverju sinni og efla með því tengsl Norvíkur við samfélagið og það umhverfi sem félagið starfar í.“

 

Úthlutað er úr sjóðnum fjórum sinnum á ári og hefur sjóðurinn úthlutað rétt tæpum 89 milljónum króna frá stofnun sjóðsins. Sjóðurinn fær tekjur sínar frá pokasölu í verslunum dótturfélaga Norvikur og einnig bein fjárframlög frá Norvik.

 

Stjórn Styrktar- og menningarsjóðs Norvikur hélt sinn þriðja úthlutunarfund á árinu 2010 þann 6. september sl. Úthlutanir ársins 2010 eru orðnar 36 og hefur samtals 15 milljónum króna verið úthlutað. Neðangreind verkefni, félög og einstaklingar hafa fengið styrki á árinu 2010:

 

  • Afreksmannaakademía Handknattleiksdeildar ÍR – uppbyggingarstarf barna- og unglingadeildar
  • Alanoklúbburinn – félagsskapur áhugafólks um 12 spora vinnu
  • Á tali við tungl og stjörnur – unglingabók rituð af Eysteini Björnssyni rithöfundi
  • Baklandið – athvarf fyrir börn eftir skóla sem búa við félagslega erfiðar aðstæður
  • Barna- og unglingabókmenntahátiðin Mýrin – haldin í apríl 2010
  • Björgunarsveitin Ársæll – endurnýjun á búnaði rústabjörgunarhóps
  • Blúshátíð Reykjavíkur – haldin í lok mars 2010
  • Elligleði – Stefán Helgi Stefánsson tenór heimsækir mánaðarlega 30 deildir á höfuðborgarsvæðinu fyrir aldraða með heilabilun og syngur gömul íslensk lög
  • Félag heyrnarlausra – 50 ára afmælishátíð félagsins
  • Foreldrafélag Drengjakórs Reykjavíkur – söngferðalag til Bandaríkjanna í tilefni 20 ára afmælis kórsins
  • Gaman saman með Karnivali dýranna – námsefni fyrir börn í leikskóla, grunnskóla og forskóla tónlistarskóla
  • Hjálpræðisherinn – viðhald á Herkastalanum í Reykjavík
  • Hraðakstur er lífshættulegur – bæklingur gefinn út af Íþróttasambandi lögreglumanna
  • Hulda – Falið verkefni 2010 – Dansverk á vegum Raven, sjálfstætt starfandi dansleikhúss
  • Íslenska landnámshænan – uppbygging aðstöðu að Tjörn á Vatnsnesi
  • Knattspyrnudeild ÍA - unglingastarf félagsins
  • Knattspyrnufélagið Valur – hand-, körfu- og fótboltaskóli sumarið 2010
  • Körfuboltaskóli Tindastóls – Unglingaráð körfuknattleiksdeildar Tindastóls
  • Laxdæla – myndræn leiksýning fyrir grunnskólabörn
  • List án landamæra – 3 vikna listahátið haldin í apríl og maí 2010
  • Lögreglukór Reykjavíkur – vegna starfsemi kórsins 2010
  • Maximús Músikús – Tónlistarskóli Maxímúsar
  • Ólafur Karl Óskarsson – langveikt barn
  • Ragnar Emil Hallgrímsson – langveikt barn
  • Rjóðrið – hvíldar- og endurhæfingarheimili fyrir langveik börn
  • Skautasamband Íslands – samnorrænt verkefni til eflingar listhlaups á skautum
  • Skógarmenn KFUM Vatnaskógi – endurnýjun á húsakosti
  • Slysavarnadeildin Eykyndill – söfnun fyrir leitarljósi á björgunarbát
  • Straumhvörf, sambýli fyrir geðfatlaða – garðhúsgögn og grill
  • Styrktarfélagið Líf – endurnýjun á húsnæði kvennadeildar Landspítalans
  • Sumarbúðir á Hólavatni – uppbygging á nýjum húsakosti
  • Sumarbúðirnar í Vindáshlíð – lagfæring á útisvæði og vatnsbóli
  • UMF Selfoss – barna og unglingadeild knattspyrnudeildar
  • Unglingasmiðjurnar Stígur og Tröð – verkefnið „Forvarnir í hestamennsku fyrir unglinga“, hestaferð vorið 2010
  • Þjóðlagahátíðin á Siglufirði – haldin í júlí 2010

 

Fjórða og síðasta úthlutun ársins verður í byrjun desember.

 

Reykjavík, 7. september 2010

 

Í stjórn Styrktar- og menningarsjóðs Norvikur

 

Steinunn Jónsdóttir

Guðríður H. Baldursdóttir

Gísli Jón Magnússon

 
Nýr framkvæmdastjóri ráðinn hjá Jarl Timber
Mánudagur, 30. ágúst 2010

Jarl Timber AB hefur nú ráðið Kjell Gabrielsson í starf nýs framkvæmdastjóra. Gabrielsson kemur frá Moelven, en þar gegndi hann starfi framkvæmdastjóra Moelven Tom Heurlin AB í Ånimskog.

Áður en Gabrielsson vann hjá Moelven, var hann umdæmisstjóri í Úkraínu hjá Swedwood International AB. Gabrielsson á sér langa reynslu, bæði í skógiðnaði og alþjóðaviðskiptum, og mun hann verða mikill fengur fyrir Jarl Timber og viðskiptaþróun fyrirtækisins í framtíðinni.

Gabrielsson mun hefja störf hjá Jarl Timber í lok október 2010.

Jarl Timber AB er dótturfélag Norvíkur Group og Norvik Timber Industries.

Hafið samband við Sampsa Auvinen, framkvæmdastjóra Norvik Timber Industries vegna nánari upplýsinga.

Símar: +371 28631100/+ 44 7979 754532

Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 
Fréttatilkynning frá Vika Wood Ltd.
Mánudagur, 02. ágúst 2010

Stærsta sögunarverksmiðja Lettlands og á Eystrasaltslöndunum, Vika Wood Ltd., hefur hafið
uppbyggingarverkefni upp á 13 milljónir evra.
Þessi framkvæmd felst í því að auka þurrkunargetu, byggja nýja flokkunareiningu fyrir óþurrkað timbur og skipta um bandsög

Þessi fjárfesting mun skila sér í tvöfalt meiri framleiðslu á hverjum klukkutíma og auka gæði hennar.

Árið 2009 framleiddi Vika Wood 274 þúsund rúmmetra af söguðu timbri. Fyrirtækið selur framleiðslu sína í löndum Eystrasaltslandanna, Evrópu, Japan, Austurlöndum fjær, Norður-Afríku og Norður-Ameríku.

Vika Wood er hluti af Norvik Timber Industries.


 

 

Til að fá frekari upplýsingar, vinsamlegast hafið samband við:

Andris Krecers, Managing Director, Vika Wood

Sími: +371 63291800

Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

eða

Sampsa Auvinen, CEO, Norvik Timber Industries

Sími: +371 28631100

Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 
SEB Bank og Vika Wood undirrita langtímalán
Föstudagur, 09. júlí 2010
seb-vika

Frá vinstri: Ainārs Ozols, framkvæmdastjóri SEB í Lettlandi, Katarina Fyrsjo, yfirmaður fyrirtækjasviðs SEB, Ilze Bulde á fyrirtækjasviði SEB og Andris Krecers, framkvæmdastjóri Vika Wood.



Föstudaginn 9. júlí 2010, undirrituðu SEB Bank og stærsta sögunarverksmiðja Lettlands, Vika Wood, samning um allt að sjö milljóna evra langtímalán í þeim tilgangi að nútímavæða og bæta verksmiðjuna.

Eins og fulltrúi SEB Bank upplýsti, þá eru þessar sjö milljónir evra lán til fyrirtækisins, en í staðinn hafa SEB Bank og Vika Wood einnig skrifað undir ábyrgðarsamning að andvirði 1.05 milljóna LVL til þess að fá byggingarstyrk Evrópusambandsins greiddan fyrirfram frá Fjárfestingar- og þróunarskrifstofu Lettlands.

Styrkurinn verður notaður til að stækka og nútímavæða verksmiðju Vika Wood Ltd. til að svara þörfum markaðarins.

Einnig er fjárhagsstuðningur úr uppbyggingarstjóði Evrópusambandsins notaður til þessa að halda úti verkefninu.

 

“Allt frá stofnun fyrirtækisins árið 1997 höfum við nífaldað framleiðslu okkar. Það hefur verið framkvæmanlegt vegna innra regluverks og möguleika á að fá fjárhagsstuðning á réttum tímapunkti,” segir Andris Krecers, stjórnarformaður og framkvæmdastjóriVika Wood Ltd.

 

Bankastjóri SEB Bank, Ainārs Ozols, bendir á að þrátt fyrir fjárhagskreppu síðari ára hafi Vika Wood Ltd. verið fært um að tryggja næga framleiðslugetu.

 

Framleiðsla fyrirtækisins náði 274 þúsund rúmfermetrum á síðasta ári, þar af voru 93,4% flutt út til 25 landa, að mestu til Japan, eða 26,9%.

Útreiknaðir og borgaðir skattar fyrir árið 2009 eru yfir 2 milljónir lata. Vika Wood Ltd. hefur 179 starfsmenn.


 
Breytingar hjá Jarl Timber
Fimmtudagur, 20. maí 2010
Sampsa

Henrik Jarl hefur látið af störfum sem forstjóri Jarl Timber og hefur Sampsa Auvinen, CEO Norvik Timber Industries tekið tímabundið við forstjórastarfi Jarl Timber þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn að félaginu.

 
Continental Wood endurskipuleggur starfsemi sína í Bretlandi
Mánudagur, 08. mars 2010

Continental Wood Ltd hefur gefið út tilkynningu um breytingu á starfsemi sinni í Bretlandi, en fyrirtækið verður nú skipt niður í tvær aðskildar viðskiptaeiningar.

The Softwood trading company, Continental Wood Products Ltd mun halda áfram starfsemi sinni frá bækistöðvum sínum í Westerham, í Carcassing, Fencing Products, Birch og Pallet timbers, og verður stjórnað af nýjum framkvæmdarstjóra, Alan Penfold. Hann mun taka við starfi sínu þann 1. maí 2010.

Alan er vel kunnur innan timburgeirans og munu söluhæfileikar hans og sérþekking í framkvæmdarstjórnun nýtast vel í nýja starfinu.

Norvik Shipping er ný eining sem er verið að mynda en hún mun sameinast starfsemi Baltic Distribution, Crouch Shipping Agency og MV Mosvik, sem er skip í eigu CWL.

Framkvæmdarstjóri þessa verks er John Phillips, sem var stofnmeðlimur Continental Wood og kemur með skipulagsreynslu sína fyrir þessa nýju einingu í þeim tilgangi að stækka hafnar- og siglingarstarfsemina, bæði fyrir CWP og fyrir skipafarm þriðja aðila.

Dagleg stjórnun Baltic Distribution og Crouch Shipping Agency mun verða áfram í höndum Robert Croshaw og Dean Border, sem báðir heyra undir John Phillips.

Bæði Alan Penfold og John Phillips munu heyra undir Sampsa Auvinen, forstjóra Norvik Timber Industries.

Continental Wood Ltd er dótturfyrirtæki Norvik Group og Norvik Timber Industries.

Nánari upplýsingar má fá hjá:
Sampssa J. Auvinen, forstjóra Norvik Timber Industries
Sími: +371 28631100
Sími: +44 7979 754532
Tölvupóstur:  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 
Styrktar- og menningarsjóður Norvíkur - styrkir veittir á árinu
Mánudagur, 14. desember 2009
Norvik-jolakvedja-net
 
Jarl Timber, Broakulla í Svíþjóð minnkar framleiðslu úr 160.000m3 í 110.000m3 árið 2010
Mánudagur, 09. nóvember 2009

Eftir að mikið af sögunarbolum féll til eftir stormana Gudrun og Per árin 2005 og 2006, er nú að verða alvarlegur skortur á sögunarbolum í suður Svíþjóð og ekki séð að bót verði þar á næstu mánuðina.

Því hefur stjórn Jarl Timber nú tekið þá ákvörðun að minnka framleiðslu fyrirtækisins úr um 160.000m3 af söguðu timbri eins og stefnir í á yfirstandandi ári, í um 110.000m3 á næsta ári.

Því miður þarf að taka þessa ákvörðun en henni fylgja uppsagnir um 45 starfsmanna félagsins, sem koma til framkvæmda á næstu mánuðum.

Jarl Timber er eftir sem áður í góðum rekstri og fyrirtækið byggir á traustum fjárhagslegum grunni.

Jón Helgi Guðmundsson
Forstjóri Norvíkur

 
Sameining EGILS þjónustuverkstæðis og Fiskvéla & tækja ehf.
Þriðjudagur, 01. september 2009
egill_logofiskvelar_logo

Frá og með 1. september verður rekstur Fiskvéla & tækja ehf. yfirtekinn af AGLI þjónustuverkstæði. Markmið sameiningarinnar er
að búa til öflugt þjónustu- og framleiðslufyrirtæki sem veitt getur viðskiptavinum öfluga og góða þjónustu.


EGILL þjónustuverkstæði hefur á síðastliðnum mánuðum verið í mjög góðu samstarfi við Fiskvélar & Tæki ehf. og hafa
stjórnendur beggja fyrirtækjanna orðið varir við töluvert meiri eftirspurn eftir þjónustu við fiskvinnsluvélar ásamt því framleiðsla
á varahlutum fyrir viðskiptavini hefur jafnt og þétt verið að aukast á síðustu misserum.


EGILL þjónustuverkstæði hefur á síðustu árum verið rekið sem heilsteypt þjónustuverkstæði en þar starfa að jafnaði 20
starfsmenn og samanstendur sá hópur af rafvirkjum, vélvirkjum, rennismiðum, vélfræðingum og rafeindavirkjum. Sú framleiðsla
og þjónusta sem hefur verið til staðar hjá Fiskvélum & Tækjum ehf. síðustu árin verður áfram óskert og sú þekking og reynsla sem
er fyrir hendi hjá starfsmönnum Fiskvéla & Tækja ehf. mun áfram nýtast fyrir viðskiptavini. Um miðjan næsta mánuð sameinast
rekstur beggja fyrirtækja undir einu þaki í rúmlega 1600 M2 húsnæði að Miðhrauni 2 í Garðabæ. Jafnframt mun sameinað félag
bera nafnið EGILL.


Eftir sameiningu verður fjöldi starfsmanna um 30 og mun EGILL samanstanda af eftirfarandi deildum:

  • Rafmagnsverkstæði
  • Véla & mótorverkstæði
  • Renniverkstæði
  • Verkstæði fyrir stærri heimilistæki
  • Verkstæði fyrir almennar viðgerðir
  • Fiskvélar

Núverandi framkvæmdastjóri Fiskvéla & Tækja ehf., Jörgen Wolfram Gunnarsson mun sinna sölustörfum hjá AGLI meðfram öðrum
störfum sem hann hefur tekið sér fyrir hendur.


Framkvæmdasstjóri EGILS verður Freyr Friðriksson og mun hann stýra daglegum rekstri fyrirtækisins. Í stjórn EGILS verða
Guðmundur H. Jónsson, Sigurður E. Ragnarsson og Bjarni Th. Bjarnason.

Virðingarfyllst,

Guðmundur H. Jónsson

 
Nýr forstjóri NTI (Norvik Timber Industries)
Þriðjudagur, 01. september 2009
Okkur er sönn ánægja að kynna nýjan forstjóra NTI (Norvik Timber Industries), Sampsa J. Auvinen, en hann tekur við stafinu í dag.

Hann mun stjórna fyrirtækjum Norvíkur erlendis, og mun starfa að þróun og eflingu fyrirtækjana.  Hann verður á skrifstofu í Riga í Lettlandi.

Síðustu árin hefur hann unnið í fyrirtækjum tengdum timburiðnaði í Finnlandi, Rússlandi og Bretlandi, síðast hjá Pöyry Forest Industry Consulting.  Sampsa er giftur og á 3 börn.  Áhugamál hans eru að skokka, fara á skíði og sjósund.

Norvík bíður Sampsa velkominn til starfa.
 
11 milljón kr. styrkur til Fjölsmiðjunnar
Mánudagur, 26. janúar 2009

Í dag fékk Fjölsmiðjan afhentan veglegan styrk vegna sölu bókar Nóatúns, Veisla með fjölskyldu og vinum, úr hendi Eysteins Helgasonar framkvæmdastjóra Kaupáss. Framleiðsla bókarinnar var styrkt að fullu af styrktarsjóði Norvikur og Nóatúni.

Bókin var seld í öllum Nóatúnsverslunum fyrir jólin og fór allt söluandvirðið óskert til Fjölsmiðjunnar. Bókin seldist gríðarlega vel, varð í 5. sæti yfir mest seldu bækur á síðasta ári s.k.v. metsölulista Morgunblaðsins og í fyrsta sæti í sínum flokki.

Fjölsmiðjan fékk afhendar rúmar 11 milljónir kr., eyrnarmerktar nýrri tónlistardeild, sem hefur verið draumur í mörg ár að stofna. Eins á að styrkja hússtjórnardeildina  til muna og þá sérstaklega eldhúsið.

Fjölsmiðjan er vinnusetur fyrir ungt fólk
sem stendur á krossgötum í lífinu.
Hér gefst fóki tækifæri til að þjálfa sig fyrir almennan vinnumarkað eða áframhaldandi nám.

 _MG_0561_1

Út trésmíðadeild Fjölsmiðjunnar, einni af fjölmörgum deildum.

_MG_0515_1

Afhending styrksins, fv. Bjarni Jóhannsson, rekstrarstjóri Nóatúns. Eysteinn Helgason, framkvæmdastjóri Kaupáss, Steinunn Jónsdóttir, formaður styrktarsjóðs Norvikur og Þorbjörn Jensson forstöðumaður Fjölsmiðjunnar


_MG_0538_1

Þorbjörn Jensson forstöðumaður Fjölsmiðjunar að þakka fyrir styrkinn.

 
Styrktar- og menningarsjóður Norvíkur - í lok ársins 2008
Miðvikudagur, 31. desember 2008
1071879
 
Styrktar- og menningarsjóður Norvíkur - styrkir veittir á árinu
Föstudagur, 26. september 2008
Styrktar- og menningarsjóður Norvíkur hf. var stofnaður í ársbyrjun 2007. 

Tilgangur sjóðsins er að styrkja verkefni eða félög sem snúa að menningu, íþróttum, listum, menntun, forvarnarstarfi, líknarmálum eða öðru því sem stjórn sjóðsins ákveður hverju sinni.  Sérstök áhersla er lögð á að styrka verkefni sem tengjast börnum og unglingum og menntun þeirra. Með þessu framtaki vill stjórn sjóðsins efla tengsl Norvíkur við samfélagið og sýna samfélagslega ábyrgð í verki.

Stærsta verkefni sjóðsins á þessu ári er útgáfa matreiðslubókar sem gefin verður út í samvinnu við Nóatún til styrktar Fjölsmiðjunni, sem er vinnustaðar fyrir ungt fólk. Mun matreiðslubókin koma út innan skamms og verður hún til sölu í öllum verslunum Nóatúns. Styrkir sjóðurinn útgáfu bókarinnar og mun söluandvirði hennar renna óskert til Fjölsmiðjunnar.

Þriggja manna stjórn mótar stefnu sjóðsins og tekur ákvörðun um úthlutanir hverju sinni.  Stjórn sjóðsins skipa Steinunn Jónsdóttir, stjórnarmaður í Norvík, Gísli Jón Magnússon, fjármálastjóri Kaupáss, og Guðríður H. Baldursdóttir, starfsmannastjóri Kaupáss.

Þriðja úthlutun ársins 2008 úr Styrktarsjóði Norvíkur fór fram í byrjun september og hafa þá eftirfarandi verkefni, félög og einstaklingar verið styrkt(ir) á árinu:



Blúshátíð Reykjavíkur 2008       
Breiðfirðingakórinn       
Draugar úti í mýri - Barnabókmenntahátíð í Reykjavík 2008       
Ella Vala Ármannsdóttir - Styrkur til náms og hljóðfærakaupa       
Maximus Músikús - Útgáfa bókar og geisladisks til kynningar á tónlist fyrir börn       
Sönghópur FEB Skagafirði       
Körfuboltaskóli Tindastóls       
Stefán Jón Sigurgeirsson skíðamaður - Styrkur til æfinga og keppni       
Sunddeild Ármanns       
Svæðisskrifstofa fatlaðra - Uppbygging útisvæðis að Gylfaflöt       
Hringsjá, náms- og starfsendurhæfing - Endurnýjun á búnaði, húsgögnum og kennslugögnum       
Landsbyggðarvinir í Reykjavík og nágrenni - Heimabyggðin mín, skólaverkefni á landsbyggðinni       
Hring eftir hring - Kennslubók og hugmyndaefni fyrir starfsfólk leikskóla, tónlist og hreyfing       
Elsa María Kristínardóttir - Styrkur vegna þátttöku í alþjóðlegu skákmóti       
Skíðadeild Tindastóls - Snjóframleiðslukerfi       
Sigrún María Kristinsdóttir - Bók um ættleiðingar á Íslandi       
Foreldra- og styrktarfélag Öskjuhlíðarskóla - Rekstur sumardvalar að Laugalandi       
Þjóðlagahátíð á Siglufirði 2008       
Foreldrafélög Lágafellsskóla og Varmárskóli í Mosfellsbæ - Sundpokar       
ÖSP - Íþróttafélag fatlaðra og þroskaheftra       
Leikhópurinn Lotta - Galdrakarlinn í Oz, barnaleiksýningar á landsbyggðinni       
Vinnustaður fatlaðra, Hvolsvelli       
Dimmuhvarf, heimili fyrir einstaklinga með einhverfu       
Knattspyrnudeild Selfoss.       
Knattspyrnulið Aftureldingar, kvennalið -  Bleika slaufan       
Hestamannafélagið Andvari       
Knattspyrnudeild ÍA       
Björgvin Björgvinsson skíðamaður - Styrkur til æfinga og keppni       
Anna Kristín Jensdóttir       
Alþjóðaver - Ljósmyndasýning, The Arctic Convoys       
Rannsóknarsetur verslunarinnar - Umhverfismál í innkaupavagninn, fræðsluefni          
Hallgrímskirkja í Vindáshlíð  - 50 ára vígsluafmæli, viðgerðir á kirkju       
Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs - Leiklistarhátíð ungs fólks       
Hjálparsveit skáta í Hveragerði - Búnaður í nýtt hús       
Íþróttasamband Fatlaðra - Ólympíuleikarnir í Peking       
Börn, skilnaðir og Þjóðkirkjan - Heimildarmynd og fræðsla       
Óháði söfnuðurinn - Viðgerðir á kirkju       
ADHD samtökin - Ráðstefna 2008
 
Skipalestir á stríðsárunum
Föstudagur, 11. júlí 2008
Styrktar- og menningarsjóður Norvíkur er aðalstyrktaraðili á ljósmyndasýningu sem opnuð var í gær á Háskólatorgi Háskóla Íslands. Sýningin er í tengslum við ráðstefnu um “Skipalestir á stríðsárunum – hlutverk Íslands í heimssögunni” og verður hún opin frá 9. til 13. júlí, en þá verður hún flutt í Sjóminjasafnið Víkina sem hefur opnað glæsilega sýningaraðstöðu við Reykjavíkurhöfn. Meðfylgjandi myndir eru frá opnun sýningarinnar.

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson og Auðun Freyr Ingvarsson framkvæmdastjóri Norvik Timber eru á meðfylgjandi myndum ásamt öldnum rússneskum og breskum sjóliðum og einum íslenskum.

IMG_1887
IMG_1892
 
Jarðskjálfti á Suðurlandi
Mánudagur, 16. júní 2008
Jarðskjálftar hafa verið á Suðurlandi frá því í lok maí og hefur stærsti skjálftinn verið rétt innan við 7 á Richter.

Verslanir Nóatúns og BYKO á Selfossi hafa ekki farið varhluta af þessum skjálftum. Mikið af varningi hristist úr rekkum og nokkrar skemmdir urðu þegar málningardósir og ýmislegt brothætt fell í gólfið. Einnig urðu skemmdir á rekkum og þaki verslunarhússins sem Nóatún er í . Starfsmenn á báðum stöðum stóðu sig frábærlega við að koma öllu í lag á ný og eru enn að.

047

053

 js1

js2
 
Breytingar á verslunum Nóatúns
Mánudagur, 16. júní 2008
Verslunum Nóatúns fækkar um þrjár á komandi vikum sem er liður í rekstrarhagræðingu og stefnumótun Nóatúns til framtíðar. Verslun Nóatúns í Hverafold var lokað 9. júní, verslun Nóatúns í Furugrund í Kópavogi lokar þann 1. júlí nk. og í Smáralind þann 15. júlí nk. Starfsfólki verslananna sem verður lokað hefur verið boðin störf innan annarra verslana Kaupáss eins og kostur er.

Eftir þessar breytingar verða verslanir Nóatúns átta talsins, í Austurveri, Grafarholti, Hafnarfirði, Hamraborg, Hringbraut, Nóatúni, Rofabæ og á Selfossi. Markmiðið er að styrkja þessar verslanir og færa þær nær framtíðarsýn Nóatúns auk þess að bæta þjónustu þeirra enn frekar. Nóatún er í forystu meðal gæða- og þjónustuverslana á Íslandi.

Nóatún nýtur yfirburðastöðu þegar kemur að gæðum og framsetningu á kjöti, fiski og öðrum sviðum ferskvöru. Eftir breytingarnar munu starfa um 500 samhentir starfsmenn á öllum aldri í verslunum Nóatúns.
 
LINDIR
Mánudagur, 16. júní 2008
lindir

Fyrsti lágvöruverðskjarni á Íslandi,Lindir í Kópavogi, var opnaður 29. maí síðastliðinn í sól og fallegu veðri. Í þessum kjarna eru stórverslanir Krónunnar, Intersport og ELKO. Það er mikill fengur fyrir höfuðborgarbúa að fá þessar verslanir og hafa þær fengið frábærar viðtökur. Krónuverslunin er stærsta sinnar tegundar, ELKO verslunin var flutt úr Smáratorgi í stærra húsnæði, en Intersport er ný á svæðinu, þó er lítil Intersport verslun í Smáralind.
 
Geir H. Haarde í heimsókn í Lettlandi
Mánudagur, 16. júní 2008
Forsætisráðherra Íslands kom í heimsókn til Lettlands í síðustu viku og heimsótti m.a. nokkur fyrirtæki Norvíkur hf.; Vika Wood, DEPO og Norvik Banka. Stjórnendur Norvíkur og starfsfólk tók mjög vel á móti Geir og fylgdarliði hans.

FU3_3748_1

FU3_3791

RZB-028

 RZB-091

RZB-067
 
Guðmundur H. Jónsson aðstoðarforstjóri Norvíkur hf.
Þriðjudagur, 10. júní 2008
Gummi_MG_4048r

Guðmundur H. Jónsson hefur nú tekið við stöðu aðstoðarforstjóra Norvíkur hf. Guðmundur situr í stjórn Norvíkur, Straumborgar, BYKO og Kaupáss og er stjórnarformaður Smáragarðs. Guðmundur er einnig stjórnarformaður Steinullarverksmiðjunnar hf. á Sauðárkróki.

Umsvif Norvíkur og systurfélaganna Straumborgar og Smáragarðs hafa aukist mikið undangengin ár og mun aðkoma Guðmundar að yfirstjórn félaganna styrkja okkur verulega.

Við bjóðum Guðmund hjartanlega velkominn til þessa starfs.

Jón Helgi Guðmundsson forstjóri Norvíkur.
 
Straumborg stofnar fjárfestingarfélag á sviði orkuiðnaðar og náttúrulegra auðlinda
Fimmtudagur, 07. febrúar 2008
- Byrjar með 5 milljarða í olíuleitar- og vinnslufélögum

causewayFjárfestingarfélag Jóns Helga Guðmundssonar og fjölskyldu, Straumborg ehf., hefur ásamt fyrrverandi framkvæmdastjóra þess, Gunnlaugi Jónssyni, stofnað félagið Lindir Resources hf., fjárfestingarfélag á sviði orkuiðnaðar og náttúrulegra auðlinda.

Félagið hefur keypt af Straumborg hluti þess í þremur olíuleitar- og vinnslufélögum sem eru aðilar að fjölda olíuleitar- og vinnsluheimilda víðs vegar um heim. Tvö þessara félaga eru staðsett í Noregi og eitt í Kanada. Verðmæti eignar Linda Resources í félögunum þremur nemur um 5 milljörðum króna, en markaðsverðmæti félaganna þriggja er samtals um 130 milljarðar kr.

 
Moody’s uppfærir lánshæfismat Norvik Banka
Þriðjudagur, 29. janúar 2008
-       lánshæfiseinkunnir óbreyttar
-       horfur stöðugar
 
Þann 9. janúar 2008 uppfærði alþjóðlega matsfyrirtækið Moody’s Investors Services mat sitt á lánshæfi Norvik Banka (Lettlandi). Moody’s gefur bankanum einkunnina D- fyrir fjárhagslegan styrkleika (BFRS) sem samsvarar lánshæfiseinkuninni Ba3. Telur Moody’s horfur í öllum liðum stöðugar.
Meðal styrkleika bankans að mati Moody’s eru nýir hluthafar bankans og reynsla þeirra af bankastarfsemi og tengslum, innleiðing upplýsingaferla, sterkt eiginfjárhlutfall og gæði eigna.
Möguleiki er á að lánshæfiseinkunn bankans verði hækkuð ef félagið heldur áfram að styrkja útibúanet sitt, lausafjárstöðu sína, fjármögnun og áhættustýringu.
Norvik Banki er viðskiptabanki með eitt stærsta útibúanet Lettlands. Í lok árs 2007 var eigið fé bankans um 7,5 ma. króna (54 milljónir LVL) og heildareignir um 86 ma. króna (620 milljónir LVL). Norvik Banki er að meirihluta í eigu Straumborgar sem er fjárfestingafélag Jóns Helga Guðmundssonar og fjölskyldu.
Nánari upplýsingar veitir Hjalti Baldursson, forstjóri Straumborgar og stjórnarmaður í Norvik Banka í síma 575-2600
 
Norvík hf. kaupir Jarl Timber
Miðvikudagur, 31. október 2007
Gengið hefur verið frá kaupum Norvík hf. á öllu hlutafé Jarl Timber, sem rekur sögunarmyllu í suður Svíþjóð.
 
Sigurður E. Ragnarsson tekur við af Ásdísi Höllu Bragadóttur sem forstjóri BYKO
Föstudagur, 14. september 2007
Ásdís Halla Bragadóttir hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri BYKO í lok september og við starfinu tekur Sigurður E. Ragnarsson. Gestur Hjaltason mun áfram veita sérvörusviði Norvíkur forstöðu (ELKO, Intersport og Húsgagnahöll), en það heyrir beint undir stjórn Norvíkur.
 
Einingarhús úr timbri frá BYKO-LAT
Fimmtudagur, 09. ágúst 2007

Einingarhús úr timbri frá BYKO-LAT. Stærsta verkefni BYKO-LAT í húsaeiningum hingað til sést á meðfylgjandi myndum.

 

timburhus1-timburhus4.jpg

Um er að ræða 3ja hæða einingarhús úr timbri sem verið er að reisa í Álasundi í Noregi. Í hverju húsi eru 9 íbúðir. Einingarnar voru framleiddar í verksmiðjunni í Valmiera og síðan settar saman af starfsmönnum BYKO-LAT á staðnum. Þessi hús eru ný framleiðsla og því ólík sumarhúsum sem framleidd hafa verið og seld til Noregs, Danmerkur, auk Íslands.
Verkið hefur gengið mjög vel og lofar góðu fyrir framtíðina.
Til hamingju BYKO-LAT!

 
Hlutafjáraukning hjá Norvik Bank
Mánudagur, 30. júlí 2007
Hlutafé lettneska bankans Norvik Bank hefur verið aukið um átta milljónir lats eða 11,38 milljónir evra, sem jafngildir 940 milljónum króna.
Stjórnarformaður bankans Jón Helgi Guðmundsson segir þetta í samræmi við stefnu eigenda að styðja jöfnum höndum við útvíkkun bankans með aukningu hlutafjár. Bankinn hefur vaxið mjög ört og því verið að styðja við vöxtinn með því að auka við hlutafé.
 
Borgarstjóri Reykjavíkur vígði nýjar höfuðstöðvar Norvik Bank
Þriðjudagur, 10. júlí 2007

0211Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson lagði inn 10 rúblur á fyrsta bankareikning í nýjum höfuðstöðvum Norvik Bank í Moskvu á föstudaginn (6. júlí). Reyndar er lágmarkseign á reikningi 500.000 íslenskar krónur, staðreynd sem starfsmenn bankans létu sér í léttu rúmi liggja við fjölsótta opnunarathöfn í nýjum höfuðstöðvum bankans í miðborg helstu fjármálaborgar Rússlands.

Snemma árs 2006 keypti Straumborg ehf. meirihluta í lettneskum banka sem þá hét Lateko Bank. 15. janúar 2007 var nafni bankans breytt í Norvik Bank í Lettlandi og Rússlandi og er það liður í þeirri viðleitni að styrkja bankana til vaxtar og nýta tækifærin sem fyrir hendi eru. Alls starfa um 80 manns hjá bankanum í Rússlandi og 650 í Lettlandi.

Norvik Bank vex hraðast allra banka í Lettlandi um þessar mundir og stefnt er á sama árangur í Rússlandi. Eigið fé bankanna er um sex milljarðar króna. Í tilefni opnunarinnar afhenti borgarstjóri Reykjavíkur Hjalta Baldurssyni stjórnarmanni í Norvik Bank glerlistaverk með merki Reykjavíkurborgar.

 
Moody’s metur Norvik banka
Fimmtudagur, 28. júní 2007

Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody’s Investor Service hefur nú veitt Norvik banka í Lettlandi lánshæfiseinkunnina Ba3, auk einkunnar á fjárhagslegum styrkleika upp á D- og mat á skammtímaskuldbindingum “Non-Prime”. Horfur eru stöðugar varðandi allar einkunnir. Ba3 er hærri einkunn en bankinn hefur frá Fitch, sem er B+ með jákvæðar horfur.

 
Smásölufyrirtæki á Norðurlöndum
Þriðjudagur, 05. júní 2007

Vöxtur íslenskra smásölufyrirtækja er gífurlegur samkvæmt nýrri skýrslu sem ráðgjafafyrirtækið Deloitte gaf út 31. maí og kynnt var á fjölmennri ráðstefnu í Stokkhólmi.

 
Smáragarður - fréttir af framkvæmdum
Föstudagur, 06. október 2006

Smáragarður ehf. er fasteignafélag Norvíkur hf. Fyrirtækið byggir og leigir út atvinnuhúsnæði ásamt því að halda utan um allar fasteignir Norvíkur.

Framkvæmdir við nýja BYKO-verslun í Kauptúni Garðabæ (við hlið Ikea) eru í fullum gangi. Jarðvinnu eru lokið og er vinna við undirstöður komin af stað.

 
Norvik hf. festir kaup á stærstu sögunarmyllu Lettlands
Föstudagur, 15. september 2006

Norvik hf, félag í eigu Jóns Helga Guðmundssonar og fjölskyldu (gjarnan kennd við BYKO) festi í dag kaup á stærstu sögunarmyllu Lettlands, VIKA Wood. Framleiðsla verksmiðjunnar er um 270.000 m3 á ársgrundvelli af söguðu timbri.

 
Yfirlýsing frá stjórn BYKO í ljósi ummæla fulltrúa Bauhaus
Miðvikudagur, 08. mars 2006

Yfirlýsing frá stjórn BYKO í ljósi ummæla fulltrúa Bauhaus.  
Í ljósi ummæla fulltrúa Bauhaus um afskipti BYKO af lóðamálum fyrirtækisins vill stjórn BYKO taka eftirfarandi fram:

 
VERÐVERND BYKO
Þriðjudagur, 25. október 2005

VERÐVERND BYKO
Fyrirtækið tryggir viðskiptavinum sínum lægsta verð á sömu eða sambærilegri vöru.

BYKO kynnir í dag VERÐVERND BYKO sem þýðir að fyrirtækið tryggir viðskiptavinum sínum lægra verð en samkeppnisaðilar bjóða á sömu eða sambærilegri vöru.

 
Norvik kaupir fyrirtækið Continental Wood Products
Miðvikudagur, 31. ágúst 2005

Norvik kaupir fyrirtækið Continental Wood Products.
Þann 26. ágúst síðastliðinn, var undirritaður samningur milli Norvíkur hf. og hluthafa Continental Wood Products Limited (www.continentalwood.co.uk) um kaup Norvíkur á öllu hlutafé félagsins.