|

Fyrsta Intersport verslunin á Íslandi var opnuð 18. apríl 1998 að Bíldshöfða 20 í Reykjavík. Þetta er fjölskylduverslun með sportfatnað og íþrótta- og útivistarvörur.
10. október 2001 var opnuð önnur Intersport verslun í Smáralind í Kópavogi Þriðja Intersport verslunin var opnuð árið 2002 og er í KÁ húsinu á Selfossi.
29. maí 2008 var opnuð stórglæsileg Intersport verslun í Lindum í Kópavogi með auknu vöruúrvali í öllum deildum, og allt það nýjasta og besta í sportinu.
27. mars 2009 var 500 fermetra Intersport verslun opnuð í BYKO á Óðinsnesi á Akureyri.
9. október 2009 var opnuð Intersport verslun í húsnæði BYKO á Selfossi.
Desember 2010 var opnuð vegleg vefverslun með breitt úrval af íþrótta- og útivistarvörum. Útivistarfatnaður, fótboltaskór og svefnpokar séu dæmi nefnd.
Í Intersport verslunum er hægt að kaupa öll helstu vörumerkin á sportvörumarkaðnum.
Iðunn Jónsdóttir er framkvæmdastjóri Intersport sem heyrir undir sérvörusvið Norvíkur.
www.intersport.is
|
Framkvæmdastjóri Iðunn Jónsdóttir
|
|
Verslunarstjóri Bíldshöfða 20 Gunnar Guðmundsson
|
Verslunarstjóri Smáralind Guðrún Ólafsdóttir
|
Verslunarstjóri í Lindum Valgeir Ólafsson
|
|