Breytingar hjá BYKO
28.06.2011

Ákveðið hefur verið að loka verslun BYKO í Kauptúni í Garðabæ þann 30. september næstkomandi og hefur ríflega 20 starfsmönnum verslunarinnar verið sagt upp störfum. Sigurður E. Ragnarsson, forstjóri BYKO, lætur af störfum hjá félaginu og Guðmundur H. Jónsson tekur við hlutverki hans, en hann hefur verið forstjóri Smáragarðs og í stjórn Norvíkur og dótturfélaga. Iðunn Jónsdóttir er stjórnarformaður BYKO.

 

Um ástæður þessara aðgerða þarf vart að fjölyrða. Aðstæður í íslensku efnahagsumhverfi hafa í langan tíma verið slæmar með tilheyrandi samdrætti í verslun með byggingarvörur. Þá hafa samkeppnisaðstæður á þeim markaði gjörbreyst með eignarhaldi og afskriftum banka á skuldum og síðar yfirtöku lífeyrissjóða á einu þeirra fyrirtækja sem starfrækt er á þessu sviði. BYKO er því nauðugur sá kostur að rifa seglin og laga sig þannig að breyttum aðstæðum.

 

Jón Helgi Guðmundsson, stjórnarformaður og forstjóri Norvíkur: “Þetta eru afar sársaukafullar aðgerðir og hefur fjölskyldan sem staðið hefur að baki rekstri BYKO síðan verslunin var sett á laggirnar árið 1962 ákveðið að taka á nýjan leik alfarið við stjórnartaumunum. Þannig öxlum við sjálf þungann af bæði þessum aðgerðum og þeim breytingum sem nauðsynlegar kunna að verða á næstu mánuðum og misserum. Ég vil þakka Sigurði E. Ragnarssyni sérstaklega fyrir hans langa og heilladrjúga starf fyrir BYKO, en hann hverfur nú til annarra starfa á vegum Norvíkursamstæðunnar.“

 

BYKO hefur verið leiðandi afl á íslenskum byggingavörumarkaði í tæplega hálfa öld. Félagið er ákveðið í að standa áfram vörð um vandaða þjónustu á því sviði og leggja sitt af mörkum til að heilbrigð samkeppni fái að dafna til augljósra hagsbóta fyrir neytendur.

 

Reykjavík 28. júní 2011

Fréttatilkynning frá Norvík