Úthlutanir Styrktar- og menningarsjóðs Norvikur
07.09.2010

Í upphafi ársins 2007 stofnaði Norvik sérstakan sjóð til að veita styrki og sýna samfélagslega ábyrgð. Sjóðurinn starfar samkvæmt skipulagsskrá og þar segir um tilgang sjóðsins:

 

„Tilgangur sjóðsins er að styrkja verkefni eða félög er varða góðgerðarmál, forvarnarstarf, menningu og listir, menntun og rannsóknir, íþróttir eða annað það sem stjórn sjóðsins ákveður hverju sinni og efla með því tengsl Norvíkur við samfélagið og það umhverfi sem félagið starfar í.“

 

Úthlutað er úr sjóðnum fjórum sinnum á ári og hefur sjóðurinn úthlutað rétt tæpum 89 milljónum króna frá stofnun sjóðsins. Sjóðurinn fær tekjur sínar frá pokasölu í verslunum dótturfélaga Norvikur og einnig bein fjárframlög frá Norvik.

 

Stjórn Styrktar- og menningarsjóðs Norvikur hélt sinn þriðja úthlutunarfund á árinu 2010 þann 6. september sl. Úthlutanir ársins 2010 eru orðnar 36 og hefur samtals 15 milljónum króna verið úthlutað. Neðangreind verkefni, félög og einstaklingar hafa fengið styrki á árinu 2010:

 

  • Afreksmannaakademía Handknattleiksdeildar ÍR – uppbyggingarstarf barna- og unglingadeildar
  • Alanoklúbburinn – félagsskapur áhugafólks um 12 spora vinnu
  • Á tali við tungl og stjörnur – unglingabók rituð af Eysteini Björnssyni rithöfundi
  • Baklandið – athvarf fyrir börn eftir skóla sem búa við félagslega erfiðar aðstæður
  • Barna- og unglingabókmenntahátiðin Mýrin – haldin í apríl 2010
  • Björgunarsveitin Ársæll – endurnýjun á búnaði rústabjörgunarhóps
  • Blúshátíð Reykjavíkur – haldin í lok mars 2010
  • Elligleði – Stefán Helgi Stefánsson tenór heimsækir mánaðarlega 30 deildir á höfuðborgarsvæðinu fyrir aldraða með heilabilun og syngur gömul íslensk lög
  • Félag heyrnarlausra – 50 ára afmælishátíð félagsins
  • Foreldrafélag Drengjakórs Reykjavíkur – söngferðalag til Bandaríkjanna í tilefni 20 ára afmælis kórsins
  • Gaman saman með Karnivali dýranna – námsefni fyrir börn í leikskóla, grunnskóla og forskóla tónlistarskóla
  • Hjálpræðisherinn – viðhald á Herkastalanum í Reykjavík
  • Hraðakstur er lífshættulegur – bæklingur gefinn út af Íþróttasambandi lögreglumanna
  • Hulda – Falið verkefni 2010 – Dansverk á vegum Raven, sjálfstætt starfandi dansleikhúss
  • Íslenska landnámshænan – uppbygging aðstöðu að Tjörn á Vatnsnesi
  • Knattspyrnudeild ÍA - unglingastarf félagsins
  • Knattspyrnufélagið Valur – hand-, körfu- og fótboltaskóli sumarið 2010
  • Körfuboltaskóli Tindastóls – Unglingaráð körfuknattleiksdeildar Tindastóls
  • Laxdæla – myndræn leiksýning fyrir grunnskólabörn
  • List án landamæra – 3 vikna listahátið haldin í apríl og maí 2010
  • Lögreglukór Reykjavíkur – vegna starfsemi kórsins 2010
  • Maximús Músikús – Tónlistarskóli Maxímúsar
  • Ólafur Karl Óskarsson – langveikt barn
  • Ragnar Emil Hallgrímsson – langveikt barn
  • Rjóðrið – hvíldar- og endurhæfingarheimili fyrir langveik börn
  • Skautasamband Íslands – samnorrænt verkefni til eflingar listhlaups á skautum
  • Skógarmenn KFUM Vatnaskógi – endurnýjun á húsakosti
  • Slysavarnadeildin Eykyndill – söfnun fyrir leitarljósi á björgunarbát
  • Straumhvörf, sambýli fyrir geðfatlaða – garðhúsgögn og grill
  • Styrktarfélagið Líf – endurnýjun á húsnæði kvennadeildar Landspítalans
  • Sumarbúðir á Hólavatni – uppbygging á nýjum húsakosti
  • Sumarbúðirnar í Vindáshlíð – lagfæring á útisvæði og vatnsbóli
  • UMF Selfoss – barna og unglingadeild knattspyrnudeildar
  • Unglingasmiðjurnar Stígur og Tröð – verkefnið „Forvarnir í hestamennsku fyrir unglinga“, hestaferð vorið 2010
  • Þjóðlagahátíðin á Siglufirði – haldin í júlí 2010

 

Fjórða og síðasta úthlutun ársins verður í byrjun desember.

 

Reykjavík, 7. september 2010

 

Í stjórn Styrktar- og menningarsjóðs Norvikur

 

Steinunn Jónsdóttir

Guðríður H. Baldursdóttir

Gísli Jón Magnússon